{"title":"Bækur","description":null,"products":[{"product_id":"faedingarsogurfedra","title":"Fæðingarsögur feðra","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFæðingarsögur feðra inniheldur sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eSögurnar í bókinni eru nafnlausar og skrifaðar af feðrunum sjálfum. Þær veita góða innsýn í upplifun og sjónarhorn feðra af meðgöngu, fæðingu og fyrstu augnablikunum í lífi barna þeirra. Sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og koma frá feðrum á mismunandi aldri. Þær segja frá flestum tegundum fæðinga, frá keisaraskurðum, fæðingum í heimahúsi, á sjúkrahúsi, í sjúkrabíl, á fæðingarheimilum og einnig erlendis.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eMeð bókinni vilja höfundar opna á umræðuna um upplifun feðra af fæðingum og vekja athygli á hlutverki þeirra og þátttöku í barneignarferlinu. Eins er von um að bókin hvetji til umræðu um upplifun fólks af fæðingum barna sinna, hvort sem er við hitt foreldri barnsins eða á milli kynslóða.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eBókin er góð lesning fyrir öll þau sem hafa áhuga á að skyggnast inn í hugarheim feðra þegar kemur að fæðingum barna þeirra.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eHefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eFyrir hvern er bókin?\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"profile_content_text\"\u003eFæðingarsögur feðra er bók fyrir alla, eða allavega langflesta. Við vonumst til þess að bókin nái til þeirra sem eiga von á barni, hvort sem það er fyrsta barn eða ekki. Eins hefur bókin mikið sagnfræðilegt gildi og getur því innihaldið verið áhugavert fyrir fólk á öllum aldri. Við vonumst einnig til þess að fagfólk hafi áhuga á að lesa um sjónarhorn feðra í fæðingum. Bókin er svo einnig skemmtileg og áhugaverð fyrir þá sem hafa gaman að mannlegu eðli, þar sem sögurnar bjóða uppá allan tilfinningaskalann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"profile_content_text\"\u003eHöfundar bókarinnar eru \u003ca href=\"https:\/\/www.penninn.is\/is\/hofundur\/isak-hilmarsson-greta-maria-b\"\u003eÍ\u003c\/a\u003esak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir ljósmóðir\u003c\/p\u003e","brand":"Ljósmæðralagerinn","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54781248176341,"sku":null,"price":3890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0711\/1852\/0533\/files\/Faedingarsogur_kapa_002.png?v=1788449876"}],"url":"https:\/\/ljosmaedralagerinn.is\/collections\/baekur.oembed","provider":"Ljósmæðralagerinn","version":"1.0","type":"link"}