Hjálpar með yfir 90% af vandamálum tengdum brjóstagjöf

Lactamo er auðveldur í notkun og margverðlaunaður. Virkni og hönnun Lactamo byggir á vísindalegum rannsóknum og gerður af mæðrum fyrir mæður.

Brjóstagjöf þarf ekki að vera sársaukafull

Brjóstagjöf er náttúrulegt ferli og ætti því að ganga vel, ekki satt? Staðreyndin er samt sú að 92% kvenna finna fyrir erfiðleikum tengdum brjóstagjöf.

Ef þú ert að takast á við vandamál eða vilt koma í veg fyrir vandamál tengdum brjóstgjöf þá er Lactamo hjálpartækið fyrir þig.

Lactamo er byggt á vísindarannsóknum og hefur hlotið viðurkenningu víða, bæði meðal mæðra og fagfólks.

Meira um viðurkenningar og rannsóknir

Notaðu Lactamo til að

  • Draga úr stálma og flýta fyrir bata
  • Losa um og koma í veg fyrir stíflur
  • Við brjóstabólgu
  • Til að auka eða draga úr framleiðslu
  • Örva sogæðakerfið
  • Draga úr eymslum
  • Styðja við handmjólkun
  • Styðja við notkun mjaltavéla
Kaupa bolta

Prófað. Verðlaunað. Elskað.

Lactamo brjóstagjafaboltinn er margverðlaunaður

  • 100% mæðra mæla með

    Í rannsókn sem var gerð meðal nýbakaðra mæðra mæltu allir þátttakendur með notkun Lactamo fyrir aðrar konur.

  • Stutt af vísindum

    Fræðigrein á sviði ljósmóðurfræða sagði Lactamo vera mikilvægt stuðningstæki fyrir konur með barn á brjósti.

  • Leysir 90% af vandamálum tengdum brjóstagjöf

    Spítalarannsókn sýndi fram á að notkun Lactamo gat auðveldað við 90% af vandamálum tengdum brjóstagjöf.

  • Verðlaunuð lausn

    Lactamo hlaut tvenn verðlaun á hinni árlegu Kind + Jugend ráðstefnu sem er haldin árlega og er stærsta ráðstefnan á sviði vöruhönnunar fyrir börn og mæður.

Hvernig virkar Lactamo?

Lactamo brjóstagjafaboltinn er gerður úr læknisfræðilegu sílikoni og fylltur með eiturefnalausu geli. Hann er mjúkur og hannaður til að líkjast brjóstvefnum sjálfum.

Boltann má hita eða kæla eftir þörfum.

Boltinn er notaður til þess að nudda lykilsvæði sem örvar sogæðakerfið og dregur úr stíflum og bólgum.

Mildur þrýstingur með boltanum dregur úr eymslum og bólgum og stuðlar að jöfnu mjólkurflæði.

Kaupa bolta

Algengar spurningar

Hvenær get ég notað Lactamo?

Lactamo boltann má nota frá síðustu vikum meðgöngunnar til að styðja við handmjólkun brodds og á fyrstu vikum eftir fæðingu til þess að hvetja mjólkurframleiðslu af stað og draga úr vandamálum sem tengjast brjóstagjöf. Auk þess má nota boltann til þess að styðja við langtíma brjóstagjöf samhliða breytingum sem verða á meðan á brjóstagjöf stendur.

Virkar Lactamo?

Já, Lactamo er margverðlaunuð og gagnreynd lausn sem hefur verið prófuð á vísindalegan hátt, fær hæstu meðmæli mæðra sem hafa notað Lactamo og leysti 90% af vandamálum tengdum brjóstagjöf í rannsóknum.

Er Lactamo öruggt?

Já, Lactamo boltinn er framleiddur úr hágæða sílikoni og hefur verið prófaður í gagnreyndum rannsóknum.

Úr hverju er Lactamo boltinn gerður?

Lactamo boltinn er gerður úr hágæða sílikoni sem hefur sama teygjanleika og brjóstvefur og getur því ekki skaðað viðkvæman vef. Gelið sem er innan í boltanum er einnig skaðlaust og hefur þann eiginleika að frjósa ekki og því hægt að nota beint úr frystinum. Einnig verður það ekki sjóðandi heitt þó boltinn fari í sjóðandi vatn.

Hvernig nota ég Lactamo?

Lactamo er gott að hafa við höndina frá byrjun, boltanum er rúllað yfir sogæðasvæði til að auka blóðflæði og hreyfa vökva í burtu frá brjóstunum. Því næst er nuddað yfir brjóstið sjálf. Boltann má nota kaldann eða heitann eftir atvikum. Best er að geyma hann í frysti svo hann sé kaldur og tilbúin fyrir næstu gjöf.

Get ég notað Lactamo til að koma í veg fyrir stálma?

Með notkun Lactamo er hægt að nudda mikilvæg svæði til þess að draga úr líkum á því að stálmi myndist eða verði slæmur.

Getur Lactamo hjálpað mér að draga úr stíflum?

Já, Lactamo má nota til þess að minnka líkur að stíflur myndist og minnka þær ef þær eru þegar komnar fram. Með boltanum eru ákveðin svæði nudduð sem eykur rennsli í sogæðakerfinu og dregur úr stíflum. Með því að hita eða kæla boltann eftir þörfum er hægt að draga úr eymslum sem myndast.