Skilmálar

Pantanir

Ljósmæðralagerinn tekur við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Greiðsla

Hægt er að greiða með kreditkorti eða íslensku debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Teya, Ljósmæðralagerinn fær því aldrei kortaupplýsingar kaupenda.

 
Sendingarmáti

Hægt er að fá pantanir sendar með Póstinum í póstbox, með Dropp eða sækja þær í Björkina, Síðumúla 10.  Það tekur alla jafna allt að 3 virka daga að afgreiða pöntunina. Sé varan send með Íslandspósti eða Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar. Póstsendingargjald er 990 kr. fyrir almennar pantanir en fyrir leiguvörur þar sem bæði er sent og skilað er gjaldið 1890 kr. Hægt er að sækja pöntun í Björkina Síðumúla 10 á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 10:00- 15:00. Aðeins er hægt að sækja á fyrirfram auglýstum opnunartímum eða samkvæmt samkomulagi.  

Verð

Auglýst verð er heildarverð vöru.  Sendingakostnaður bætist við í greiðsluferli.

Vöruskil

Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Tilkynna skal vöruskil með tölvupósti á info@ljosmaedralagerinn.is. Boðið er upp á endurgreiðslu eða vöruskipti. Endurgreiðsla er gerð í sama formi og greitt var fyrir vöruna. Athugið að kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Ljósmæðralagernum. Heimsendingargjald fæst ekki endurgreitt.

Ef liðnir eru meira en 14 dagar frá kaupum þá endurgreiðum við aldrei skilavöru, þá er aðeins hægt að skipta eða fá inneignarnótu.

Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða gallaða vöru afhenta. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Ljósmæðralagersins.

Hafi kaupandi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta ber honum að upplýsa Ljósmæðralagernum um það við fyrsta tækifæri.

Fyrirvari

Ljósmæðralagerinn áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndbrengl. Ljósmæðralagerinn áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum fær viðskiptavinur endurgreitt.

Persónuupplýsingar

Sjá friðhelgisstefnu Shopify.

Lög og varnarþing 

Um viðskipti við Ljósmæðralagerinn, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum, gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Ljósmæðralagersins. og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.