Fæðingarsögur feðra
Fæðingarsögur feðra
Fæðingarsögur feðra inniheldur sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra.
Sögurnar í bókinni eru nafnlausar og skrifaðar af feðrunum sjálfum. Þær veita góða innsýn í upplifun og sjónarhorn feðra af meðgöngu, fæðingu og fyrstu augnablikunum í lífi barna þeirra. Sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og koma frá feðrum á mismunandi aldri. Þær segja frá flestum tegundum fæðinga, frá keisaraskurðum, fæðingum í heimahúsi, á sjúkrahúsi, í sjúkrabíl, á fæðingarheimilum og einnig erlendis.
Með bókinni vilja höfundar opna á umræðuna um upplifun feðra af fæðingum og vekja athygli á hlutverki þeirra og þátttöku í barneignarferlinu. Eins er von um að bókin hvetji til umræðu um upplifun fólks af fæðingum barna sinna, hvort sem er við hitt foreldri barnsins eða á milli kynslóða.
Bókin er góð lesning fyrir öll þau sem hafa áhuga á að skyggnast inn í hugarheim feðra þegar kemur að fæðingum barna þeirra.
Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?
Fyrir hvern er bókin?
Fæðingarsögur feðra er bók fyrir alla, eða allavega langflesta. Við vonumst til þess að bókin nái til þeirra sem eiga von á barni, hvort sem það er fyrsta barn eða ekki. Eins hefur bókin mikið sagnfræðilegt gildi og getur því innihaldið verið áhugavert fyrir fólk á öllum aldri. Við vonumst einnig til þess að fagfólk hafi áhuga á að lesa um sjónarhorn feðra í fæðingum. Bókin er svo einnig skemmtileg og áhugaverð fyrir þá sem hafa gaman að mannlegu eðli, þar sem sögurnar bjóða uppá allan tilfinningaskalann.
Höfundar bókarinnar eru Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir ljósmóðir
Deila
