Fæðingin ykkar
Fæðingin ykkar
Hvers vegna fylgja fæðingu verkir?
Hvað er að gerast í líkamanum í fæðingu?
Hvað getur maki gert til þess að styðja við fæðandi konu?
Hér er að finna fjölda nytsamra ráða og svörum við þeim fjölmörgu spurningum sem upp geta komið í aðdraganda fæðingar. Höfundur bókarinnar, Inga María Hlíðar Thorsteinsson ljósmóðir, hefur í störfum sínum safnað að sér umfangsmiklum fróðleik og útkoman er sérlega vönduð og áhugaverð bók.
Ein dýrmætasta stund í lífi foreldra er fæðing barns þeirra. Þá fæðist ekki eingöngu nýr einstaklingur inn í þennan heim heldur verða einnig til foreldrar sem fá fjölbreytt hlutverk í hendur. Titill bókarinnar Fæðingin ykkar skírskotar til þeirrar raunar sem móðir og barn þola í fæðingu. Hann getur þó einnig vísað til þess að fæðing er fjölskyldustund sem móðir og maki hennar eða stuðningsaðili upplifa saman.
Það er í höndum foreldra að undirbúa sig fyrir þessa einstöku lífsreynslu. Með góðum undirbúningi, áreiðanlegum upplýsingum og hófstilltum væntingum eru auknar líkur á að foreldrarnir öðlist ánægjulega upplifun af fæðingunni. Helsta ósk og hvati höfundar bókarinnar er að sem flestir foreldrar leggi sáttir af stað í stærsta ferðalag lífs síns – foreldrahlutverkið.
Fæðingin ykkar er ríkulega prýdd ljósmyndum frá fjölmörgum ljósmyndurum auk skýringarteikninga eftir Esther Viktoríu Ragnarsdóttur og Ara Arnaldsson. Aftast er svo handhægur orðalisti þar sem auðvelt er að fletta upp því sem leitað er að hverju sinni. Þessi bók ætti að vera skyldueign allra verðandi foreldra.
Deila
