Flokkur: Handleiðsla

Faghandleiðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Fagleg handleiðsla er vettvangur þar sem starfsfólk fær tækifæri til að ræða störf sín í trúnaði með leiðsögn fagaðila.

Handleiðslutími er öruggt rými fyrir þig til að ræða málefni sem upp koma í starfi, gefur þér tækifæri til að ígrunda tengsl og tilfinningar sem vakna, og getur verið grundvöllur fyrir frekari þroska og nám í þínu fagi.

Vinnan sem fer fram í handleiðslutímunum byggir á "the seven eyed model" sem sýnt hefur góðan árangur í handleiðslu fagstétta sem vinna með fólk og verða fyrir áhrifum af aðstæðum, góðum og slæmum, í lífi annarra.

Mælt er með að heilbrigðisstarfsfólk sæki sér handleiðslu reglulega.  Gott er að setja sér ásetning um 4-6 skipti í hverri törn eða sækja tíma á 4-8 vikna fresti. 

Hægt er að bóka í einstaklingstíma og opna hóptíma hér fyrir neðan.  Fyrir aðrar tímasetningar, handleiðslu á vinnustað eða lokaða hóphandleiðslu hafið samband á info@ljosmaedralagerinn.is eða í síma 546-1610

Handleiðari er Harpa Ósk Valgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir sem lært hefur handleiðslufræði við the Centre for Supervision Training and Development í Bath í Englandi.  Veittur er 50% kynningaafsláttur til loka árs 2026.