1 1

Faghandleiðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk (60 mín)

Faghandleiðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk (60 mín)

Faghandleiðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Fagleg handleiðsla er vettvangur þar sem starfsfólk fær tækifæri til að ræða störf sín í trúnaði með leiðsögn fagaðila.

Handleiðslutími er öruggt rými fyrir þig til að ræða málefni sem upp koma í starfi, gefur þér tækifæri til að ígrunda tengsl og tilfinningar sem vakna, og getur verið grundvöllur fyrir frekari þroska og nám í þínu fagi.

Tíminn okkar er 60 mínútur

Fyrir tímann er gott að hugsa:

  • hvort það sé einhver hugsun eða spurning sem hefur komið upp hjá þér nýlega
  • hvort einhver ákveðinn skjólstæðingur eða fjölskylda hefur snert þig sérstaklega
  • hvort það sé eitthvað í vinnunni sem þú heldur áfram að hugsa um þegar þú kemur heim

Vinnan sem fer fram í handleiðslutímunum byggir á "the seven eyed model" sem sýnt hefur góðan árangur í handleiðslu fagstétta sem vinna með fólk og verða fyrir áhrifum af aðstæðum, góðum og slæmum, í lífi annarra.

Mælt er með að heilbrigðisstarfsfólk sæki sér handleiðslu reglulega.  Gott er að setja sér ásetning um 4-6 skipti í hverri törn eða sækja tíma á 4-8 vikna fresti.