Heitt og kalt buxnainnlegg
Heitt og kalt buxnainnlegg
Þetta fallega innlegg frá BARE-MUM er hægt að nýta sem hita eða kælimeðferð á auma staði eftir fæðingu. spöng, yfir legið og yfir keisaraör. Innleggið er auðvelt að þrífa og hægt að nota síðar þegar þörf er á kæli eða hitapoka á heimilinu.
Innleggið passar í sérstakan vasa BARE MUM sængurlegu nærbuxnanna.
Það sem þú munt elska:
• Endurnýtanlegt og hægt að handþvo, gott fyrir þig og umhverfið
• Sveigjanleg hönnun og mjúkt efni sem hentar viðkvæmum svæðum
• Heldur sveigjanleika jafnvel þegar það er frosið, mótast þægilega að líkamanum
• Inniheldur náttúrulegt gel og raunverulegar jurtir
• Öruggt fyrir þig og barnið með TGA vottun
• Vottað án BPA og þaláta
• Viðurkennt af kvensjúkdómalæknum og ljósmæðrum í Ástralíu
Hentar fyrir:
HITAMEÐFERÐ
Til að auka blóðflæði og mýkja spöngina í fæðingunni, sem getur dregið úr líkum á spangarrifu við fæðingu. Einnig gagnlegt til að lina verki, auma vöðva og krampa í legi eftir fæðingu.
Hitið í 10 sekúndur í örbylgjuofni eða setjið á kaf í heitt vatn. Ef þörf er á má hita í 5 sekúndur í viðbót þar til ætluðu hitastigi er náð.
KÆLIMEÐFERÐ
Til að draga úr bólgu, ertingu og óþægindum eftir fæðingu. Hægt er að endurnýta innleggið til að lina grindar- eða bakverki, gyllinæð, æðahnúta á ytri kynfærum og túrverki.
Kælið í frysti í 1 klst eða í ísbaði.
Innihaldsefni
Náttúrulegt, eiturefnafrítt gel: vatni, glýseróli, sellulósagúmmí og kalíumsorbað. 100% laus við BPA og þaláta. TGA vottað.
Deila
