1 8

Stóri brjóstagjafapakkinn

Stóri brjóstagjafapakkinn

23,239 ISK
23,239 ISK
Útsala Uppselt
Valkyrja- Silfur brjóstaskjöldur (Stærð)
Lífrænt te fyrir brjóstagjöf (Lagerstaða)

Með stóra brjóstagjafapakkanum er verðandi móðir vel sett fyrir eitt stærsta verkefnið sem tekur við eftir fæðinguna, brjóstagjöf.

Í pakkanum er Brjóstagjafabókin, en í henni er hafsjór af gagnreyndri og nýrri þekkingu.  Góð byrjun í brjóstagjöf skiptir mestu máli og því er gott að vera búin að fræða sig um verkefnið með því að glugga í bókina áður en að fæðingu kemur.  Komi upp vandamál í brjóstagjöf er einnig hægt að lesa um þau í bókinni.

Með því að hafa Valkyrjur og Lactamo nuddboltann við höndina strax frá fæðingu er hægt að bregðast við sárum, stálma og stíflum strax og vandamálið byrja að láta kræla á sér.

Valkyrjurnar hlífa geirvörtunum við áreiti strax frá fæðingu, verði þær sárar og aumar styður náttúrulegt silfrið við húðina með því að vera bakteríu og sveppa fráhrindandi auk þess sem minni líkur eru á að fatnaður og brjóstagjafapúðar festist við húðina á milli gjafa.

Lactamó nuddboltann er bæði hægt að hita og kæla, hreyfingin í nuddinu ýtir undir virkni sogæðakerfisins og dregur úr bólgum, bjúg, stálma og stíflum.  Einnig hjálpar boltinn við framleiðsluvandamál og styður vel við notkun mjaltavéla.

Með pakkanum fylgir 1 pakki af PumpinPal mjólkurpokum frítt með, sem gott er að nýta til að geyma mjólk í kæli eða frysti. Auk þess er 5% afsláttur er veittur af heildarverði varanna í pakkanum.